Frjálsíþróttaskóli UMFÍ í næstu viku

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ verður haldinn í sumar á Sauðárkróki í fjórða sinn en þar komast krakkar í frábæran félagsskap, holla hreyfingu, skemmtun og útiveru. Skólinn er fyrir ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára. Aðalþjálfarar skólans verða Árni Geir Sigurbjörnsson og Gunnar Sigurðsson frjálsíþróttaþjálfari. Gott tækifæri fyrir krakkana að bæta sig í frjálsum íþróttum rétt fyrir Unglingalandsmótið.

Frjálsíþróttaskólinn á Sauðárkróki hefst kl. 13.00 mánudaginn 18. júlí og stendur til kl 13.00 föstudaginn 22. júlí og segir Elmar Eysteinsson framkvæmdastjóri UMSS þetta kjörið tækifærið til að nýta frábær íþróttamannvirki á Sauðárkróki.

Þátttökugjald er 15.000 og er innifalið kennsla, fæði og húsnæði og er skráning á http://www.umfi.is . Síðasti dagur til að skrá sig er fimmtudagurinn 14 júlí.

Fleiri fréttir