Frost á Hvammstanga
Bíómyndin Frost, nýjasta mynd Reynis Lyngdal, verður frumsýnd í öllum helstu kvikmyndahúsum landsins föstudaginn 7. september nk. og þar á meðal í bíósal Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Norðanátt.is greinir frá þessu.
Myndin fjallar um ungt par, Öglu jöklafræðing og Gunnar kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Hér má sjá stiklu úr myndinni.
Bíómyndin verður sýnd í tvígang á föstudaginn; kl. 19:30 og kl. 22:00 og fara bókanir fram á Fésbókarsíðu Selasetursins, með að senda textaskilaboð í síma 690 8050 eða með því að senda línu á netfangið selasetur@selasetur.is.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. og er myndin bönnuð innan 16 ára.