Frumsýning í kvöld

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson í kvöld en þar galdrar Lína Langsokkur til sín persónur úr þekktum barnaleikritum, t.a.m. Mikka ref, Lilla klifurmús, Karíus og Baktus, Kasper, Jesper og Jónatan og Soffíu frænku. Tónlist spilar stóran þátt í leikritinu og sér Rögnvaldur Valbergsson um undirspil. Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir.

Allt í plati er 20. barnaleikritið sem Leikfélag Sauðárkróks setur upp frá árinu 1984, en frá árinu 2000 hefur eitt slíkt verk verið sett upp á hverju hausti.Tólf leikarar stíga á stokk í sýningunni og sumir í fyrsta skiptið.

Þrjú af fjórum verkum inní verkinu hafa áður verið sýnd af Leikfélagi Sauðárkróks, Lína Langsokkur (1986), Kardemommubærinn (1987) og Dýrin í Hálsaskógi (1994). Styttri leikgerð af Allt í plati var sýnd á Sauðárkróki þann 17. júní árið 2003, þrisvar fyrir fullu húsi.

Áætlaðar eru 8 sýningar á verkinu:

  •  Frumsýning miðvikudag 26. okt. kl. 19:30
  •  2. sýning föstudag 28. okt. kl. 19:30
  •  3. sýning laugardag 29. okt. kl. 17:00
  •  4. sýning sunnudag 30. okt. kl. 17:00
  •  5. sýning þriðjudag 1. nóv. kl. 19:30
  •  6. sýning miðvikudag 2. nóv. kl. 19:30
  •  7. sýning föstudag 4. nóv. kl. 19:30
  •  8. sýning laugardag 5. nóv. kl. 16:00

Miðasala í Kompunni kl. 13-18, í síma 849-9434

Fleiri fréttir