Fulltrúar Svf. Skagafjarðar hittu heilbrigðisráðherra

Heilbrigðisráðherra hitti fulltrúa sveitarstjórnar Skagafjarðar sl. þriðjudag til þess að ræða framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki. Um var að ræða óformlegan fund í þeim tilgangi að fá svör við erindi sem sveitarfélagið hafði ítrekað sent til ráðherra um viðræður um yfirtöku á rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar, að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðarráðs.

Á fundinum var farið yfir stöðu mála en engin niðurstaða fékkst, samkvæmt Stefáni, en þau vildu ekki síst árétta mikilvægi þess að svara erindinu svo hægt sé að setja formlegar viðræður af stað. Ráðherra sagðist vera tilbúinn að ræða möguleikann á yfirtöku sveitarfélagsins á Stofnuninni en málið snýst um að fá nægilegt fjármagn til rekstursins.

„Markmiðið er að viðhalda núverandi þjónustu svo að hún skerðist ekki. Og ef við getum betur tryggt þá þjónustu sem fyrir er með samningi við ríkið, þá verðum við að skoða það alvarlega,“ sagði Stefán.

Þá hafa fleiri sveitarfélög á landsbyggðinni sóst eftir því að yfirtaka rekstur heilbrigðisstofnana í sínu byggðalagi, s.s. bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum og Vesturbyggð, og að sögn Stefáns segir það manni að hugmyndafræðin sé ekki alveg útúr kortinu.

Fleiri fréttir