Fyrirmynd í námi fullorðinna

Námsmenn Farskólans í Grunnmenntaskólanum, sem er hluti af Fisktækninámi, fengu viðurkenningu nýverið viðurkenningu sem fyrirmynd í námi fullorðinna árið 2015, eins og sagt er frá á vef Farskólans-Miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra.
Fisktækninámið er samstarfsverkefni Farskólans, Fjölbrautaskólans, Fisktækniskóla Íslands og FISK seafood hf. Þegar Fræðslumiðstöð atvinnulífsins leitaði til fræðslu- og símenntunarmiðstöðvanna eftir tilnefningum til ,,Fyrirmyndar í námi fullorðinna 2015" ákvað starfsfólk Farskólans að tilnefna heilan námshóp sem fyrirmynd. Það hefur aldrei verið gert áður. Fræðslumiðstöðin ákvað að veita hópnum viðurkenningu ásamt tveimur öðrum einstaklingum, sem voru tilnefndir af SÍMEY - símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Iðunni - fræðslusetri.
Námið í Fisktækni hófst haustið 2014. Að skipulagi og framkvæmd námsins koma Farskólinn, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fisktækniskólinn í Grindavík ásamt FISK seafood hf. Vorið 2014 luku sautján starfsmenn FISK raunfærnimat á móti námskrá í Fisktækni og í kjölfarið hófu 21 manns nám í Fisktækni. Vorið 2016 mun hópurinn útskrifast sem Fisktæknar frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Námið er skipulagt þannig að bóklegar greinar eru kenndar í Farskólanum og falla þær inn í ramma Grunnmenntaskólans, sem er ein af vottuðum námsleiðum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og niðurgreiðir Fræðslusjóður þann hluta námsins, Fræðslusjóðurinn Landsmennt greiðir það sem upp á vantar eða hluta námsmanna. Aðrar námsgreinar skipulagði Fjölbrautaskólinn og kenndi. Nokkrir námsmenn fóru í fjarnám í stökum áföngum hjá Fisktækniskólanum með staðnáminu.
Hér er um tilraunaverkefni að ræða þar sem tvö skólastig vinna saman, það er að segja framhaldsskólastigið og framhaldsfræðslustigið ásamt atvinnulífinu. Námið tengist einnig tilraunaverkefninu ,,Menntun núna í Norðvesturkjördæmi" sem lesa má nánar um í fyrri fréttum á vefsíðu Farskólans, en það verkefni veitti styrk til námsins, sem rann til FNV. Verkefnastjórar fisktækninámsins eru Halldór Gunnlaugsson hjá Farskólanum og Margrét Hallsdóttir hjá FNV.