Fyrsta barn ársins Hvammstangabúi

Mynd:Pexels.com
Mynd:Pexels.com

Fyrsta barn árs­ins fædd­ist á fæðing­ar­deild Land­spít­al­ans þegar 24 mínútur voru liðnar af árinu. Var það stúlka sem vó 3.770 grömm og var 52 sentimetra löng að því er greint var frá í fréttum RÚV í gær. Fjöl­skylda stúlk­unn­ar er frá Hvammstanga. Er stúlkan ein þriggja barna sem fæddust á Landsspítalanum fyrstu nótt ársins en auk þess fæddist eitt barn á sjúkrahúsinu á Akureyri.

 

 

Fleiri fréttir