Fyrsta deildin í seilingarfjarlægð

Tindastóll/Hvöt vann frábæran sigur á liði Dalvíkur/Reynis á Blönduósvelli í dag. Um var að ræða uppgjör tveggja efstu liðanna í 2. deildinni og ljóst að það lið sem færi með sigur í leiknum væri í dauðafæri með að komast upp í 1. deild. Lokatölur urðu 5-2.

Fannar Örn Kolbeinsson kom okkar mönnum yfir en Gunnar Már Magnússon jafnaði fyrir gestina. Ingvi Hrannar Ómarsson gerði næstu tvö mörk Tindastóls/Hvatar og Arnar Sigurðsson kom okkur í 4-1. Snorri Eldjárn Hauksson minnkaði muninn en síðasta orðið átti Blönduósingurinn Hilmar Þór Karlsson og innsiglaði glæsilegan 5-2 sigur.

Strákarnir hafa verið að spila fínan fótbolta í sumar og hafa heldur betur náð sér á strik núna í seinni umferð móts. Þegar tveir leikir eru eftir þarf liðið einn sigur til að gulltryggja sæti í 1. deild að ári sem er glæsilegt eftir erfiða byrjun á mótinu þar sem gæfuleysið jafnaðist á við gæfuleysi íslenska karlalandsliðsins. Sæti í 1. deild er því í seilingarfjarlægð en ljóst að ekkert má út af bera því enn eiga fimm lið möguleika á að krækja í tvö efstu sætin í deildinni. Næsti leikur verður erfiður, derbíleikur á Ólafsfirði gegn góðvinum okkar í Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar. Síðasti leikurinn verður síðan á Króknum en þá mæta Húsvíkingar í heimsókn.

Áfram Tindastóll/Hvöt!

Fleiri fréttir