Fyrsta mót Skagfirsku mótaraðarinnar
Fyrsta mót Skagfirsku mótaraðarinnar verður haldið í reiðhöllinni Svaðastöðum miðvikudaginn 19. febrúar nk. Keppt verður í Fjórgangi í eftirfarandi flokkum: Barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og öðrum flokki fullorðinna. Keppni mun hefjast kl. 19 hjá barnaflokki.
Keppt verður í V5 (tveir eða fleiri knapar eru inná í einu og stjórnað af þul. Keppni hefst upp á þá hönd sem skráð er i ráslista. Verkefnið er 1. Frjáls ferð á tölti. 2. Hægt til milliferðar brokk. 3. Meðalfet. 4. Hægt til milliferðar stökk.) í barnaflokki, unglingaflokki og öðrum flokki fullorðinna.
Keppt verður í V2 (tveir eða fleiri knapar eru inná í einu og stjórnað af þul. Keppni hefst upp á þá hönd sem skráð er í ráslista. Verkefnið er 1. Hægt tölt. 2. Hægt til milliferðar brokk. 3. Meðalfet. 4. Hægt til milliferðar stökk. 5. Yfirferðartölt.) í ungmennaflokki og fyrsta flokki fullorðinna.
Aðgangseyrir 1000 kr. Skráning í e-mail: fritz@mi.is fyrir kl. 24 sunnudaginn 16. febrúar. Skráningargjald er 1500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn og unglinga.
Næstu mót verða 5. mars, 19. mars og 2. apríl. en KS-deildin hefst 26. febrúar.
Skagfirska mótaröðin er stigakeppni, stigahæsti keppandinn í hverjum flokki hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum. Allar nánari upplýsingar á heimasíðum hestamannafélaganna í Skagafirði, sem og heimasíðu reiðhallarinnar www.svadastadir.is.
Heimild : Sjónhornið