Fyrsti bíllinn sem keyptur var í Skagafjörð sýndur í Samgönguminjasafninu
Bifreið sem Árni Daníelsson á Sjávarborg keypti og flutti til Sauðárkróks 1926 er nú til sýnis í Samgönguminjasafninu í Stóragerði. Gunnar Þórðarson þúsundþjalasmiður og safnstjóri fann bílinn í Kópavogi en segist einungis hafa hann að láni til að sýna gestum safnsins.
Árni keypti bílinn í Bandaríkjunum og flutti með sér til Íslands og gerir hann út í Reykjavík veturinn 1925-1926. Um sömu mundir keypti hann nýja vörubifreið af Chevroletgerð og flutti hann báða bílana til Sauðárkróks með skipi vorið 1926.
Í Skagfirzkum annál 1847-1947 segir að tíðindi hafi þótt mikil er frétt flaug um slík farartæki á Króknum því fæstir Skagfirðingar höfðu áður séð bifreið.
Margir glæsilegir bílar njóta sín vel í Samgönguminjasafninu í Stóragerði og alltaf gaman að koma þar við.
Ekki er því við öðru að búast en Skagfirðingar tæpum 90 árum síðar vilji berja bílinn augum en Gunnar Þórðarson segir að bíllinn verði í safninu í einhvern tíma en vissi ekki hvenær hann þyrfti að skila honum aftur til eiganda síns.