Fyrstu aðstoðarbeiðnirnar á árinu
Um eitt leytið á þriðjudag var óskað eftir aðstoð Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð sem brást skjótt við og var farið á vélsleðum fram í Lýtó. Höfðu nautgripir frá bónda nokkrum sloppið og þurfti að koma haldi á þá aftur.
Á vef Flugbjörgunarsveitarinnar segir að fjórir sleðakappar hafi farið í leiðangurinn og leyst verkefnið með mikilli prýði ásamt fólki á bænum. Þá barst aðstoðarbeiðni sama dag um að verka snjó og ís ofan af þaki íbúðarhúss í Varmahlíðarhverfinu en farið var að leka inn í það. Fólki skal bent á að hlákuspá er um helgina svo hyggilegt væri að hreinsa snjó af þökum sem hafa lítinn halla og frá niðurföllum svo ekki fari illa.