Fyrstu æfingaleikirnir um helgina í körfunni

Meistaraflokkur Tindastóls lék sína fyrstu æfingaleiki á þessu undirbúningstímabili um helgina, þegar strákarnir heimsóttu Skallagrím, KR og Stjörnuna.

 

Strákarnir hófu leik í Borgarnesi á föstudagskvöldið þar sem þeir unnu heimamenn með miklum mun en daginn eftir var spilað gegn KR í DHL-höllinni en sá leikur tapaðist með rúmlega 20 stigum, eftir að hafa verið jafn þangað til 5 mínútur voru eftir. Í gær var svo leikið gegn Stjörnunni í Garðabæ og vannst sá leikur 84-90, þar sem Rikki fór á kostum með 27 stig, Svavar og Þröstur gerðu 15 hvor, Eryk 14, Hreinn 10, Pálmi Geir 5 og Helgi Rafn 4, eftir því sem segir á Tindastóll.is.

Rétt er að árétta að hér er um æfingaleiki að ræða og vildu þeir sem Feykir ræddi við sem minnst um úrslitin segja þar sem þau skipta ekki öllu máli. En útlitið er bjart fyrir komandi vetur og verður spennandi að fylgjast með góðu liði Tindastóls í efstu deild körfuboltans.

Fleiri fréttir