Gæði úr Húnaþingi
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
21.09.2012
kl. 08.27
Opin málstofa um upprunavottun handunninna vara úr Húnaþingi vestra verður á morgun, laugardaginn 22. september, í Selasetrinu og hefst kl. 13. Allir eru velkomnir.
- Dagskrá málstofunnar er eftirfarandi:
- Inngangur - ávarp
- Kynning á markmiðum verkefnisins og leiðir til að ná þeim – markmið er að hanna lógó fyrir handunnar vörur úr Húnaþingi
- Fyrirlestrar:
- Elías Gíslason, Ferðamálastofa
- „VAKINN gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar - Eiga upprunavottanir einnig heima í VAKANUM?“
- Dorothee Lubecki, Rabarbaría
- „Svarið er já en hönnun er málið“ – að pakka hugmyndir og vörur inn
- Kaffi
- Umræður
- Fundarlok