Gæðingamót Þyts og úrtaka fyrir landsmót

Gæðingamót Þyts og úrtaka fyrir landsmót verður laugardaginn 9. júní og sunnudaginn 10. júní á félagssvæði hestamannafélagsins Þyts á Hvammstanga. 

Þar verður keppt í 1. flokki í tölti (opið fyrir alla), A-flokki og B-flokki einnig í 2. flokki í B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki og 100 metra skeiði.

Síðasti skráningardagur er á morgun, þriðjudaginn 5. júní, á skráningar má senda á netfangið kolbruni@simnet.is .

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Þyts.

Fleiri fréttir