Gaf út geisladisk til minnigar um eiginmanninn
Þann 22. febrúar 2011, gaf Elínborg Sigurgeirsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla V-Hún. út geisladiskinn Lauf, sem er til minningar um Egil Gunnlaugsson eiginmann hennar sem lést 31.ágúst 2008 en hann var héraðsdýralæknir í Húnaþingi vestra. Öll lögin á diskinum eru eftir Elínborgu og flytjendur eru flestir fyrrverandi nemendur Tónlistarskóla V-Hún. sem hún hefur stýrt á þriðja áratug.
Upptökur annaðist Sigurvald Ívar Helgason, auk þess voru fleiri sem komu að upptökum og má þar nefna Hljóðsmiðjuna í Hveragerði. Diskurinn er til sölu hjá Elínborgu og hægt er að panta hann á netfanginu borg@simnet.is eða í síma: 864- 2137