Gáfu vatnsvél í íþróttamiðstöðina í Varmahlíð

Í síðustu viku komu þær systur Sigríður og Helga Sjöfn Helgadætur færandi hendi í Íþróttamiðstöðina í Varmahlíð. Voru þær að afhenda styrk fyrir hönd Kvenfélags Seyluhrepps.

Styrkurinn hljóðar upp á 70.000 krónur og á að nota upp í kaup á vatnsvél fyrir íþróttahúsið en slíka vél hefur skort í Íþróttamiðstöðinni.

 

Fleiri fréttir