Gagnrýnir sinnuleysi velferðaráðherra

Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur beðið eftir svörum frá Guðbjarti Hannessyni velferðaráðherra um hvers vegna niðurskurðarhnífnum sé beitt af meiri hörku á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki en annars staðar. Í grein sinni á Feyki.is gagnrýnir Sigurjón Þórðarson ráðherrann fyrir að gefa ekki nánari skýringar á málinu.

Sigurjón segir aðför ráðherrans hafa komið Skagfirðingum í opna skjöldu þar sem fyrir síðustu Alþingiskosningar hafi hann lagt áherslu á jafnræði á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Jafnframt sagðist hann ætla að taka til rækilegrar endurskoðunar niðurskurðartillögur forvera síns þegar hann tók við ráðherratign á síðasta ári.

Sem fyrr segir hefur Sveitarstjórn Skagafjarðar beðið um nokkurt skeið eftir svörum frá ráðherra. Jafnframt hefur verið kallað eftir viðbrögðum við skýrslum, sem teknar voru saman af Gallup, þar sem kemur skýrt fram að hlutfallslega mesti niðurskurðurinn verði hjá HS og bent á neikvæðar afleiðingar þess út í samfélagið. Málið var rætt á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í morgun og í fundargerð segir:

„Byggðarráð lýsir megnri óánægju og vonbrigðum yfir því að ekki hafi verið brugðist við beiðni sveitarfélagsins um fund með velferðarráðherra vegna stórfellds niðurskurðar á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki á árinu 2012. Jafnframt lýsir byggðarráð vonbrigðum með að ekki hafa borist viðbrögð ráðherrans við þeim skýrslum sem honum hafa verið sendar um stofnunina og niðurstöðu þeirra.“

Einu svörin sem komið hafa frá velferðarráðherra fengust í gær þegar einn íbúi sveitarfélagsins tók sig til og sendi honum fyrirspurn á „beinni línu DV.IS“. Þar var spurt um niðurskurðinn og svaraði ráðherra því til að stærsta hluta niðurskurðarins mætti skýra með því að hætt verði sólarhringsþjónustu vegna fæðinga. Sigurjón bendir hins vegar á að umræddri þjónustu hafi verið hætt áður en ráðherra tók við embætti og það geti því ekkert haft með boðaðan niðurskurð að gera.

 

 

 

 

Fleiri fréttir