Gamlársdagshlaup 2015

Frá Gamlársdagshlaupi á Króknum.
Frá Gamlársdagshlaupi á Króknum.

Hið árlega Gamlársdagshlaup verður þreytt samkvæmt venju frá Íþróttahúsinu á Sauðárkróki á morgun síðasta degi ársins en lagt verður af stað klukkan 13:00. Vegalengdir að eigin vali, þó að hámarki 10 km. Allir eru hvattir til að taka þátt, fólk getur gengið, skokkað eða hjólað allt eftir eigin höfði.

Skráning fer fram í Íþróttahúsinu frá klukkan 12:00. Ekkert þátttökugjald – engin tímataka – ferskt loft, útdráttarverðlaun og gleði!

 

Fleiri fréttir