Gangstéttarsteypa á Hofsósi og Sauðárkróki
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í gangstéttarsteypu á Hofsósi við Suðurbraut, Skólagötu og Lindargötu, og hluta Iðutúns á Sauðárkróki. Útboðsgögn verða afhent, frá og með 6. júní, í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Skagfirðingabraut 21.
Tilboð verða opnuð hjá Veitu- og framkvæmdasviði Sveitarfélagsins Skagafjarðar í Áhaldahúsinu Borgarteig 15, föstudaginn 14. júní 2013 kl 13:30 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska, segir í tilkynningu frá Veitu- og framkvæmdasviði Sveitarfélagsins Skagafjarðar.