Gauksmýri valinn bær mánaðarins

Gauksmýri í Línakradal í Húnaþingi vestra hefur verið valinn bær septembermánaðar hjá Ferðaþjónustu bænda en í byrjun hvers mánaðar er valinn einn ferðaþjónustubær innan vébanda Ferðaþjónustu bænda sem hefur staðið sig sérstaklega vel á sviði gæða - og umhverfismála, vöruþróunar og í þjónustu við viðskiptavini. Þá er einkum horft til sérstöðu staðarins og nýbreytni á sviði þjónustu og afþreyingar. Val á bæ mánaðarins byggist á umsögnum gesta og mati starfsfólks skrifstofu Ferðaþjónustu bænda.

„Gauksmýri er glæsilegt sveitasetur í fallegu umhverfi, einnig hestamiðstöð og fuglaparadís með fjölbreyttar veitingar og vinalega þjónustu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ferðaþjónustu bænda.

Í fréttatilkynningunni segir að samkvæmt viðskiptavinum og starfsfólki Ferðaþjónustu bænda eru gæðin og fjölbreytnin hjá Gauksmýri til fyrirmyndar. Gestgjafarnir Jóhann Albertsson og Sigríður Lárusdóttir og annað starfsfólk staðarins leggur sig fram við að veita góða þjónustu og miðla sérþekkingu sinni á íslenska hestinum til gesta. Vel er hugað að aðgengismálum staðarins sem og umhverfismálum.

Gestgjafar á Gauksmýri Jóhann Albertsson og Sigríður Lárusdóttir.

Í umsögn um Gauksmýri segir:

„Gestir finna glögglega tengingu staðarins við hestinn en Gauksmýri er skemmtilega skreytt með hesta – og náttúrutengdum myndum og munum. Lögð er áhersla á að allir sem vilji geti komist í nánari snertingu við íslenska hestinn óháð aldri og getustigi, hvort sem það er með því að ríða út eða með því að taka þátt í hirðingu í kringum hestinn. Hestaleiga er opin allt sumarið og styttri hestaferðir með leiðsögn eru farnar fjórum sinnum á dag. Ein lengri skipulögð stóðréttaferð er farin í október en stóðréttirnar í Víðidal eru einstakur árlegur viðburður. Einnig eru í boði hestasýningar fyrir hópa sem fara fram á sýningarvelli sem gestir geta séð yfir frá stórri verönd útfrá veitingasalnum. 
 
Gauksmýrartjörn sem er í um 10 min göngufjarlægð frá Gauksmýri er mikil fuglaparadís: „Við endurheimtum þetta votlendi árið 1999, útbjuggum fuglaskoðunaraðstöðu og lögðum göngustíg niður að henni sem einnig er fær fyrir hjólastóla. Í húsinu má finna kíki og fuglabækur. Fjöldinn allur af fuglum hefur snúið aftur til tjarnarinnar og þar hafa sést u.þ.b. 35 tegundir fugla. Rósin í hnappagati Gauksmýrartjarnar er hinn sjaldgæfi Flórgoði. Við viljum að sem flestir geti notið þessarar fuglaparadísar og öllum sem eiga leið fram hjá Gauksmýrartjörn er velkomið að heimsækja fuglaskoðunarhúsið“ segir gestgjafinn Jóhann glaður í bragði.

Gestir Gauksmýrar taka virkan þátt umhverfisstefnu staðarins:  „Við hvetjum gesti okkar til að ganga vel um náttúruna og umhverfið með okkur. Allt sorp er flokkað á staðnum og við förum sparlega með vatn og rafmagn. Við erum líka afar stolt af því að hafa fengið silfurvottun Green Globe fyrir nokkrum árum og yfir því að vera þátttakendur í skógræktarverkefni Norðurlandsskóga“ segir Jóhann.
 
Auk mýr – og fjalllendisins sem Línakradalur státar af er Gauksmýri vel staðsett til skoðunarferða á norðvesturlandi. Meðal áhugaverðra staða eru Borgarvirki, Selasetur Íslands á Hvammstanga, Hvítserkur, Breiðabólstaður og Kolugljúfur. Þess má geta að Gauksmýri stendur einnig við sögufrægan stað í Grettissögu, Miðfjarðarvatn þar sem Grettir hinn sterki lék ísknattleik aðeins 15 ára gamall og vakti athygli fólks fyrir hreysti sitt og atgervi.
 
Samkvæmt Jóhanni og Sigríði er andi Grettis þó ekki sá eini sem svífur yfir vötnum í Gauksmýri: „Þjóðsögur segja okkur frá draug einum sem sagður er vera á Gauksmýri. Hún heitir Gauksmýrarskotta og á að dvelja á Böðvarshólum í Vesturhópi og Gauksmýri í Línakradal til skiptis. Sást hún stundum í för með Hörgshóls-Móra og Litluborgar-Topp. Við ábúendurnir höfum nú reyndar ekki orðið Skottu vör þó svo henni sé stundum kennt um ef eitthvað týnist!“

Gauksmýri er stór og bjartur veitingasalur þar sem gestir geta upplifað fallegt umhverfið á meðan þeir njóta matarins. Gestgjafarnir leggja mikinn metnað í að bjóða ferska og holla afurð í veitingum sínum, þar á meðal grænmeti úr gróðurhúsum staðarins og heimabakað brauð. Gauksmýri er einnig eini staðurinn á landinu sem býður upp á daglegt grillhlaðborð á sumrin en húsbóndinn á bænum, Jóhann, grillar glaður fjölda tegunda kjöts og fisks ofan í gesti um 100 kvöld á ári!“

 

Fleiri fréttir