Gauti með silfur

Á heimasíðu frjálsíþróttadeildar Tindastóls segir frá því að aðalhluti Meistaramóts Íslands í frjálsíþróttum fór fram á nýja vellinum á Selfossi helgina 23. – 24. júlí.  Veður var slæmt báða dagana, rok á laugardeginum og úrhellisrigning á sunnudeginum, sem spillti mjög fyrir árangri keppenda.

Keppendur á mótinu voru nálægt 200 talsins, frá 14 félögum og samböndum.  Flestir voru ÍR-ingar eða 51, FH-ingar 39 og frá heimamönnum í HSK kepptu 28.  Skagfirðingar voru aðeins 3 að þessu sinni.

Gauti Ásbjörnsson varð í 2. sæti í stangarstökki, stökk 4,22m, langt frá sínu besta eins og aðrir í stangarstökkinu.

Halldór Örn Kristjánssonvarð í 5. sæti í þrístökki með 11,51m, og í 6. sæti í langstökki með 5,90m.

Jóhann Björn Sigurbjörnssonkomst í úrslit í 100m hlaupi og varð í 8. sæti af 25 keppendum á 11,21sek, sem er hans langbesti tími, en meðvindur var því miður vel yfir leyfilegum mörkum, bæði í undanrásum og í úrslitahlaupinu.  Sama var að segja um langstökkið, þar náði hann sínum besta árangri, 5,86m og varð í 7. sæti, en vindur var of mikill.

Í stigakeppni karla sigraði FH, ÍR í 2. sæti og Breiðablik í 3. sæti. Lið UMSS varð í 9. sæti.

Í stigakeppni kvenna sigraði  FH líka, HSK í 2. sæti og ÍR í 3. sæti.

Í samanlagðri stigakeppni mótsins sigruðu því FH-ingar að þessu sinni og slógu þar með út sigurvegara tveggja síðustu ára, ÍR-inga

Fleiri fréttir