Geggjað stuð á gordjöss Lummudögum

Það ríkir frábær stemning á Króknum í dag enda heljarins húllumhæ á nánast hverju horni í bænum. Í gamla bænum eru markaðsborð við flesta húsveggi og má fá nánast allt milli himins og jarðar. Lummurnar eru að sjálfsögðu í öndvegi á Lummudögum en á Sauðárkróksvelli er Landsbankamót í knattspyrnu í fullum gangi.

Þegar ljósmyndari Feykis kíkti í bæinn vildi svo skemmtilega til að piltarnir í Múgi búgi kölluðu á Róbert bakara, í þann mund sem hann bar út í bakgarðinn eitthvað gúmmilaði, og heimtuðu að fá hann upp á bílskúrsþak til að taka með þeim í það minnsta eitt lag. Bakarinn lét tilleiðast eftir stutta samningalotu, þeyttist upp stigann til strákanna og renndi sér létt í gegnum Það geta ekki allir verið gordjöss við fínar undirtektir gesta og gangandi.

Hluta lagsins náði ljósmyndari á myndband sem var tekið upp í einhverskonar Dogma-stíl en kannski nær gleðin og stuðið í Skagafirði í gegn.

Norðanáttin á Króknum er sjóðheit í dag (ef einhver var að velta veðrinu fyrir sér) þó hitastigin séu ekki teljandi nema á rétt tæplega fingrum beggja handa. Sólin skín og vindurinn staldrar við - enda margt að sjá og gaman að lifa.

http://www.youtube.com/watch?v=e2IpMB2qdfY

Fleiri fréttir