Gerðu góða ferð á Gullmót

Krakkarnir í sunddeild Tindastóls gerðu góða ferð á Gullmót KR sem haldið var í Laugardalshöll um helgina. Alls fóru níu keppendur á aldrinum 10-14 ára og kepptu fyrir Tindastól.

Að sögn Þorgerðar Evu Þórhallsdóttur, formanns sunddeildar, sem jafnframt var fararstjóri í ferðinni, stóðu krakkarnir sig vel. „Margir bættu tímana sína og svo voru nokkrir sem unnu riðlaverðlaun og fengu Hámark-drykk að launum. Við eigum frábæra og duglega krakka og unglinga í sundinu.“

Fleiri fréttir