Gerður Rósa er framkvæmdastjóri Elds í Húnaþingi
Gerður Rósa Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Elds í Húnaþingi 2013. Samkvæmt Norðanátt.is hefur Gerður Rósa verið viðloðandi hátíðina síðustu ár, en hún var í nefnd hátíðarinnar 2012 og einnig kom hún inn í nefndina á síðari stigum árið 2011. Hátíðin fagnar 10 ára afmæli í ár.
Gerður Rósa segir á Norðanátt.is þegar vera komin með ýmsar hugmyndir í kollinn en segist þó ekki ætla að breyta hátíðinni á neinn stórvægilegan hátt. Eina sem hún segir að muni mjög líklega breytast er fyrirkomulagið á hverfakeppninni.
„Mér líst bara rosalega vel á þetta og er mjög spennt á að takast á við þetta verkefni. Þetta er auðvitað mjög krefjandi og mikið ábyrgðarhlutverk sem ég er komin í en ég ætla og vona innilega að ég standi mig vél svo hátíðin heppnist jafn vel og síðastliðin ár,“ sagði hún í samtali við Norðanátt.
Þeim sem áhuga hafa á að vera með í nefnd hátíðarinnar í ár eða eru með hugmyndir varðandi hátíðina sem þeim langar að koma á framfæri, er bent á að hafa samband við Gerði Rósu á netfangið eldurihun@gmail.com.