Gestastofa sútarans tilnefnd til Landstólpans 2014

Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn verður í lok apríl 2014 verður "Landstólpinn - samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar" afhentur í fjórða sinn. Af því tilefni óskaði Byggðastofnun eftir tilnefningum til viðurkenningarinnar á árinu 2014. Á síðasta fundi sínum sl. fimmtudag samþykkti Byggðarráð að tilnefna Gestastofu sútarans til viðurkenningarinnar.

Viðurkenningin er veitt til verkefnis eða starfsemi, umfjöllun eða annað sem vakið hefur athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. Lögð er áhersla á tilnefndir verði einstaklingar, hópar, fyrirtæki og verkefni, sem ekki eru á vegum stofnana eða sveitarfélaga.

Fleiri fréttir