Gestur Guðnason í Söngvakeppni Sjónvarpsins

Sauðkrækingurinn Gestur Guðnason ásamt Hallvarði Ásgeirssyni á lag í Söngvakeppni  Sjónvarpsins 2012 sem hefur göngu sína næsta laugardagskvöld. Gestur sem er sonur Guðna Friðrikssonar prentara í Nýprenti og Valgerðar Einarsdóttur læknaritara, kenndi sjálfum sér á gítar fyrst um sinn með því að pikka upp lög og heilu plöturnar eftir eyranu  ásamt því að setja saman lagstúfa.

Síðar hóf hann nám í klassískum gítarleik og heillaðist meðal annars af barrokki og nútímatónlist. Í framhaldi af námi sínu skráði hann sig í nám í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands. Gestur hefur leikið með hljómsveitunum Núll, Stórsveit Nix Noltes og 5ta Herdeildinni, og upp á síðkastið tekið þátt í hinum ýmsu hljóðgjörningum á vegum S.L.Á.T.U.R. (samtökum listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík). Í dag starfar Gestur sem gítarkennari. Hann tekur nú þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrsta sinn.

HÉR má heyra lag þeirra Gests og Hallvarðs ásamt viðtali sem tekið var við þá af starfsfólki Rúv.

Fleiri fréttir