Gestur Sigurjónsson sigurvegari Jónsmessugleði
Jónsmessugleði GSS fór fram með pompi og prakt á Hlíðarendavelli á að kveldi sumarsólstöðudags þann 21. júní 2013. Gestur Sigurjónsson bar sigur úr býtum og hreppti til varðveislu hinn eftirsótta Jónsmessupela. Fær hann nafn sitt letrað á gripinn en verður að skila honum að ári átöppuðum.
Gestur þurfti ásamt öðrum keppendum að leysa nokkrar snúnar þrautir auk þess að koma kúlunni í holur sem voru ævintýralega staðsettar. T.d. að slá teighögg með pútter á þriðju, með örvhentri kylfu á fimmtu og með bundið fyrir augu á áttundu. Þessar þrautir leysti Gestur snilldarlega. Ágreiningur var vakinn upp frammi fyrir dómara í mótslok um verðlaunaafhendinguna þar sem tilkynnt hafði verið var í byrjun að enginn gestur gæti hreppt pelann góða. Dómari blés á þetta andóf og vitnaði í hið fornkveðna að glöggt sé Gests golfið. Golfklúbbur Sauðárkróks segir frá þessu.