Giant liðléttingar hjá Vélaval í Varmahlíð
Vélaval ehf. mun nú í vikunni hefja sölu á Giant liðléttingum sem eru framleiddir af hollenska fyrirtækinu Tobroco, en liðléttingarnir munu vera til sýnis á Sveitasælunni um næstu helgi.
Markaðshlutdeild Giant hefur vaxið ört síðustu ár og eru þeir nú með eina mest seldu liðléttinga í Evrópu enda þekktir fyrir gæði, stöðugleika, afl og mikla lyftigetu. Liðléttingarnir verða frumsýndir á Sveitasælu 2013 þann 24. ágúst nk. á Sauðárkróki en þar verður hægt að berja þá augum.