Gídeonmenn heimsækja Varmahlíðarskóla
Fyrir helgi fengu nemendur í 5. bekk Varmahlíðarskóla góða gesti í heimsókn þar sem þrír Gídeonfélagar, þeir Guðmundur, Bjarni og Símon komu færandi hendi því hverjum nemanda var afhent að gjöf Nýja testamentið.
Á heimasíðu Gídeonfélagsins segir að markmið félagsins sé að færa þeim von sem ekki þekkja náðarverk Jesú Krists, með því að koma orði Guðs í hendur fólks á sem flestum aldursskeiðum þess.
Nemendur Varmahlíðarskóla tóku þeim vel, hlýddu á kynningu þeirra og skoðuðu með þeim nýju bókina sem þeir eignuðust þennan dag og þökkum þeim fyrir komuna.