Gjöf til HS og stjórnarskipti

Í júní síðastliðinn gaf Kvenfélag Rípurhrepps, sem er elsta kvenfélag landsins, Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki gjöf að verðmætti 500.000 kr. og fjölskyldu Stefáns Jökuls 100.000 kr. Fyrir gjöfina gat Heilbrigðisstofnunin keypt sjúkrarúm, sturtustól, tólf fallega dúka fyrir Dvalarheimilið og tvo eyrnamæla fyrir heilsugæsluna.

Ákveðin tímamót urðu á síðasta ári hjá kvenfélaginu þegar upp kom sú umræða að leggja félagið niður þar sem aðeins sjö konur voru starfandi og engir nýjir félagar höfðu bæst við síðan 1985. Yngri konurnar úr Nesinu og ættaðar þaðan áttuðu sig á mikilvægi þess að halda þessu gamla, merkilega félagi lifandi og flykktust í félagið. Í dag eru 18 konur starfandi í félaginu.

Gamla og nýja stjórnin saman og Sigrún heiðursfélagi. Á myndina vantar Sigurbjörgu gjaldkera.

Við afhendingu gjafabréfs til Heilbrigðisstofnunnar urðu einnig formleg stjórnarskipti en fráfarandi stjórn var búin að sitja í stjórn í rúm 30 ár. Nýjir félagar gáfu fráfarandi stjórn og heiðursfélaga gjöf fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og voru það Gestastofa Sútarans og Lyfja sem styrktu félagið.

Kvenfélag Ripurhrepps

Sigrún Hróbjartsdóttir er heiðursfélagi og hefur verið í félaginu síðan 1951 og í fráfarandi stjórn sátu Ingibjörg Jóhannsdóttir formaður, Kristín Bára Ólafsdóttir gjaldkeri og Sigurbjörg Valtýsdóttir ritari. Nýju stjórnina skipa Ásbjörg Valgarðsdóttir formaður, Hildur Magnúsdóttir gjaldkeri og Edda María Valgarðsdóttir ritari.

Kvenfélag Rípuhrepps og Herdís Clausen. 6 af 7 sem voru áður en nýjar konur komu í félagið. Á myndina vantar Sigurbjörgu.

Kvenfélag Rípurhrepps

Sigrún Hróbjartsdóttir heiðursfélagi

Fleiri fréttir