Gjöfult ár hjá fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum
Árið 2011 var mjög gjöfult fyrir fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum. Áfram hefur gengið vel að afla styrkja til rannsókna, ásamt því að bleikjukynbætur ganga mjög vel. Þetta kemur fram á heimasíðu Háskólans á Hólum.
Á árinu uppskar deildin laun erfiðis síns en þá útskrifuðust fimm framhaldsnemar sem verið hafa í námi undir leiðsögn sérfræðinga skólans: Tveir meistaranemar, Mathew Stephen Seymour og Daniel Paul Govoni, og þrír doktorsnemar, Camille A-L Leblanc (Háskóli Íslands og Oregon State University), Eva Küttner (Háskólinn í Guelph) og Pamella J. Woods (Háskóli Íslands og University of Washington).
Einnig birtu sérfræðingar deildarinnar 14 greinar í ritrýndum tímaritum og einn bókarkafla, en aldrei hafa birst jafn margar greinar eftir sérfræðinga deildarinnar á einu ári. Á heimasíðu skólans má sjá lista yfir þær.