Glaðir körfuknattleiksmenn

Það ríkir mikil gleði í herbúðum körfuknattleiksdeildar Tindastóls, því nú á næstunni verður lagt langþráð parketgólf í íþróttahúsið og verður Tindastóll síðasta félagið í úrvalsdeild til að fá parketgólf í sitt íþróttahús.

Á fréttavefnum karfan.is er sagt frá þessu og vitnað í umsjónarmann íþróttamannvirkja, Ótthar Eðvarsson, þar sem hann segir að stefnt sé að því að parketgólfið verði komið á um mánaðarmótin september - október.

Forsvarsmenn körfuknattleiksdeildarinnar sögðu í stuttu spjalli við Feykir.is að septembermánuður verði skrýtinn í starfsemi deildarinnar og æfingar verði settar upp víða í sveitarfélaginu, bæði úti og inni, á meðan íþróttahúsið verður lokað. "En við gerum allt til að fá parket," fylgdi sögunni jafnframt.

Fleiri fréttir