Glæsileg kokkakeppni í Árskóla
Það var glæsileg kokkakeppnin sem fram fór í Árskóla miðvikudaginn 11. febrúar. Sex lið tóku þátt, eitt lið úr hverjum matreiðsluhópi og að auki eitt aukalið. Það var margt um manninn og mikil eftirvænting hjá krökkunum. Sjá mátti að mikill metnaður var lagður í matargerðina og var maturinn sérlega vel heppnaður.
„Dómarar voru lengi að störfum, smökkuðu oft á réttunum og það var greinilegt að valið var erfitt. Eftir erfiða bið voru úrslitin loksins kunngjörð. Lið Hrafnhildar Baldursdóttur og Malenar Áskelsdóttir urðu í fyrsta sæti en þær elduðu kjúkling með hráskinku. Í öðru sæti voru þeir Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Hugrún Ása Gylfadóttir og Fríða Freydís Þrastardóttir með fylltar sætar kartöflur, og í þriðja sæti voru þær Sigrún Þóra Karlsdóttir og Hildur Heiðdís Þrastardóttir með kjúklingarétt,“ sagði Ásta Búadóttir heimilisfræðikennari í samtali við Feyki.
Allir réttirnir voru ljúffengir enda var þetta erfitt val fyrir dómarana sem voru þeir Eiður og Jón matreiðslumeistarar frá Grettistaki, Snorri bakari og matreiðslumaður frá Ólafshúsi, Róbert frá Sauðárskróksbakarí og Árni frá Hard Wok Cafe.
Öllum þátttakendum er óskað til hamingju með frábæran árangur og góðan mat og dómurunum fyrir að gefa sér tíma til að koma og dæma og þá sem gáfu vinningana.
Vinningarnir voru frá Grettistaki, Ólafshúsi, Hard Wok og Bláfelli.