Gleði og gaman á Gautaborgarleikunum

Gautaborgarleikunum í frjálsíþróttum lauk á sunnudag og gekk keppnin vel. Mikið keppnisskap og gleði ríktu í skagfirska hópnum og margir bættu sinn fyrri árangur. Veðrið hefur ekki komið Skagfirðingum á óvart, hellirigning var á föstudegi, vindur ógilti ýmsar greinar á laugardegi, en sunnudagur var góður og nú blasir við góð tíð, ekta íslenskir umhleypingar í veðrinu.

Þetta kemur fram á Tindastóll.is en þar segir ennfremur að hópurinn hafi þrjá daga til að skemmta sér í Gautaborg, áður en haldið verður heim.  Farið var í SKARA-vatnaleikjagarðinn í gær, sem er stórkostlegt ævintýraland en í dag og á morgun eru frjálsir skoðunardagar, en þá munu áreiðanlega einhverjir skoða “Sænska íþróttasafnið”, sem er steinsnar frá  gististað hópsins.

Heimasíða þess er:   www.idrottsmuseet.se

ÚRSLIT frá mótinu er hægt að nálgast HÉR.

Fleiri fréttir