Glímir enn við meiðsli

Húnvetnska frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir er enn að glíma við meiðsli en hún hefur ekkert keppt síðan sumarið 2012. Hún varð að draga sig í hlé vegna meiðsla og síðar á árinu kom í ljós að um brjósklos var að ræða.

Helga Margrét segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi tekið langan tíma að greina meiðsli hennar. Hún fann fyrst fyrir verkum árið 2012 en verkur aftan í lærinu olli henni miklum óþægindum. Það var ekki fyrr en gamlar myndir af bakinu á henni voru skoðaðar sem læknar áttuðu sig á því að um brjósklos væri að ræða en þrýstingur á taug olli verkjunum í lærinu.

Í kjölfar greiningarinnar ákvað Helga Margrét að taka sér gott frí og sl. sumar fannst henni hún vera orðin fín í bakinu. „Ég byrjaði að æfa mjög vel um miðjan ágúst og þetta hélt alveg fram í miðjan nóvember en því miður tók þetta sig upp aftur og það má segja að ég sé eiginlega bara í sömu sporum,“ segir Helga Margrét í frétt Mbl.is en nánar er rætt við hana í Morgunblaðinu í dag.

 

Fleiri fréttir