Góð byrjun Tindastólsdrengja á Íslandsmótinu
Drengjaflokkur körfuknattleiksliðs Tindastóls spilaði sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu um síðastliðna helgi. Þá mættu þeir Fjölni í Grafarvoginum á laugardeginum en Skallagrím á Borgarnesi á sunnudeginum.
Fram kemur á heimasíðu Tindastóls að leikurinn hafi verið jafn framan af, með stöðuna 23-23 eftir fyrsta leikhlutann en Fjölnisstrákarnir náðu yfirhöndinni í öðrum leikhluta þar sem staðan var 47-42 í hálfleik. Í fjórða leikhluta náðu Fjölnismenn góðu forskoti en Tindastólsdrengirnir náðu jafntefli á lokasprettinum. Þá var leikurinn framlengdur og þá settu Pálmi Geir og Ingvi Rafn þrista fyrir Tindastól og sá síðarnefndi sá um að klára leikinn á vítalínunni og sigruðu leikinn með stöðuna 92-100.
Stig Tindastólsmanna voru eftirfarandi; Ingvi Rafn 34, Pálmi Geir 31, Pétur Rúnar 17, Sigurður Páll 10, Finnbogi 4 og Friðrik Þór 4. Hér má sjá myndir frá leiknum.
Öruggur sigur gegn Skallagrími
Í leiknum á Borgarnesi vannst öruggur sigur gegn Skallagrími. Eftir fyrsta leikhlutann var staðan 10-21 fyrir Tindastól og voru þeir með yfirhöndina allan leikinn en lokastaðan var 75-93
Stig Tindastólsmanna voru eftirfarandi; Ingvi var stigahæstur með 24 stig, Pálmi Geir gerði 23, Pétur 22, Sigurður 13, Friðrik Þór 9 og Finnbogi 2.
Næsti leikur á Íslandsmótinu fer fram á heimavelli Tindastóls þann 29. október, þar sem drengjaflokkurinn keppir á móti Stjörnunni.