Góð gjöf til Dvalarheimilis HS
feykir.is
Skagafjörður
24.10.2013
kl. 09.38
Alltaf er nokkuð um að Dvalarheimili HS berist gjafir frá velunnurum stofnunarinnar, sem koma í góðar þarfir. Þann 19. október sl. fékk Dvalarheimilið að gjöf hljóðnema með hátalara, til að auðvelda upplestur. Það voru börn og afkomendur hjónanna Sigríðar Hjálmarsdóttur og Sverris Björnssonar sem afhentu gjöfina með þakklæti fyrir umönnun og umhyggju sem þeim var veitt þann tíma sem þau dvöldu þar.
Heilbrigðisstofnunin færir þeim bestu þakkir fyrir.