Góð ráð í Vísindi og graut
Næsti fyrirlestur í fyrirlestraröð Ferðamáladeildar Hólaskóla, Vísindi og grautur, fer fram miðvikudaginn 19. febrúar nk. kl. 11.15. í kjallaranum í Odda, (Háskóla Íslands). Einnig verður hægt að hlusta í gegnum fjarfund á Hólum í stofu 303. Fyrirlesari eru Margrét Reynisdóttir hjá Gerum betur og mun hún fjalla um Þjóðerni og þjónustu - Góð ráð í samskiptum við erlenda gesti.
Í tilefni að útgáfu á glænýrri bók sinni mun Margrét Reynisdóttir segja frá nokkrum góðum ráðum í samskiptum við erlenda ferðamenn.
„Vilja öll þjóðerni sem heimsækja Ísland samskonar þjónustu? Vilja allir samskonar mat? Eigum við að taka tillit til sérþarfa gestanna? Eða eigum við að koma til móts við óskir þeirra án þess að glata sérkennum okkar? Þessum spurningum verður varpað fram á fyrirlestrinum,“ segir fyrirlesturinn í fréttatilkynningu hjá Ferðamáladeild Hólaskóla.
„Gera má ráð fyrir að fyrirlesturinn sé sérstaklega hagnýtur fyrir þá sem munu starfa við ferðaþjónustu á komandi sumri,“ segir í tilkynningunni.
Næstu fyrirlestrar eru á eftirfarandi dögum á sama tíma dags:
- 19. mars - Dr. Anne Buchmann, lecturer, Newcastle Business School, Ástralíu (titil vantar)
- 22. apríl - Professor Susan Moore, Nature Based Tourism Research Group, Murdoch University, Perth AUSTRALIA. Titill: Developing and managing wildlife tourism for sustainability.