Góð stemning á Gúttó

Multi musica hópurinn hélt útgáfuteiti sl. föstudagskvöld í hinu sögufræga húsi Gúttó. Þangað lögðu margir leið sína til að skemmta sér og fagna með tónlistarhópnum.

Þar ríkti kósý stemning og boðið var uppá heitt kakó og sérbakaðar chili-súkkulaði muffins. Svo steig hópurinn á svið og spilaði og söng framandi tónlist sína við góðar viðtökur áhorfenda. Þar var jafnframt hægt að kaupa hinn nýútkomna geisladisk Unus Mundus.

Fleiri fréttir