Góð veiði á sjóstönginni
Fínasta veiði hefur verið á sjóstöng síðustu daga og mjög stutt í fiskinn sem hefur verið að veiðast austur af höfninni á Sauðárkróki. Í gær miðvikudag skruppu þeir frændur Kári Gunnarsson og Jakob Jóhannsson eftir vinnu á sjóinn og fengu 40 kg af blönduðum afla, þorsk, ýsu, kola og ufsa. Tók fiskurinn bæði beitu, (sandsíli sem fæst í Skaffó) og einnig ýmsar gerðir af spúnum.
Þegar nánast var komið myrkur og klukkan að nálgast sex, sáu þeir félagar fuglager skammt frá og sigldu þeir þangað, nokkuð suðaustur af Innstalandsskerinu.
-Þegar þangað kom gaf á að líta, um allan sjó, stökk þessi bolta ufsi. Það er ekki ónýtt fyrir þá sem eiga einhverjar skektur að ná sér í soðið þegar svo stutt er að fara, enda spáð brælu næstu viku, segir Kári.