Góðir gestir heim að Hólum

Meðal góðra gesta sem heimsótt hafa Hólaskóla þessa vikuna eru tveir er tengjast alþjóðlegu samstarfi skólans. Fyrr í vikunni kom framkvæmdastjóri Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi, Belinda Theriault en hún fundaði með deildarstjórum og öðrum akademískum starfsmönnum og fjallaði þá m.a. um möguleika íslenskra fræðimanna til rannsóknardvalar í Bandaríkjunum og til kennaraskipta milli landanna.

 

Frá þessu er sagt á vef Háskólans á Hólum og einnig að daginn eftir hafi Lynne Mitchell komið heim að Hólum til skrafs og ráðagerða en hún heldur um alla þræði alþjóðasamstarfs háskólans í Guelph í Kanada, en sá skóli á í samstarfi við alla íslensku ríkisháskólana.

Meðal þeirra námskeiða sem hafa staðið yfir í ferðamáladeild Hólaskóla, er Menningararfur er auðlind. Í því er fjallað um íslenskan menningararf - sögu, minjar og þjóðhætti, menningarlandslag og minjaheildir.

Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur og forstöðumaður Hólarannsóknarinnar, annast kennslu á námskeiðinu. Staðbundin lota var haldin á höfuðborgarsvæðinu fyrr í mánuðinum en þá heimsóttu nemendur landnámssýninguna Reykjavík 871 +/-2, Fornleifavernd ríkisins, Húsafriðunarnefnd ríkisins, Þjóðminjasafn Íslands og minjagarðinn að Hofsstöðum í Garðabæ

Fleiri fréttir