Góðir gestir hjá Siglingaklúbbnum Drangey - Myndband

Í síðustu viku bauð Siglingaklúbburinn Drangey góðum gestum frá félagsþjónustunni í Skagafirði í sjóferð. Farið var á tveimur bátum og hentaði annar þeirra mjög vel fyrir hjólastóla. Drangey hefur staðið fyrir námskeiði fyrir börn í samvinnu við Sumar T.Í.M undanfarið og þessa vikuna verður boðið upp á námskeið fyrir eldri siglara. Blaðamaður Feykis slóst með í för og hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig var.

http://www.youtube.com/watch?v=TNjpqE22dpA

Fleiri fréttir