Góðir gestir í Varmahlíðarskóla
Varmahlíðarskóli fékk í gær mánudag góða gesti frá Portúgal og Þýskalandi. Það eru þátttakendur í Comeniusar-verkefni sem ber heitið Að búa í grennd við eldfjöll. Hefur verkefnið staðið frá árinu 2010 og eru sex lönd aðilar að því.
Gestirnir komu sl. sunnudag norður Kjöl í fylgd Páls Dagbjartssonar en í gær heimsóttu þau skólann og funduðu með verkefnastjórn. Í dag heimsækir hópurinn Mývatnssveit en með þeim í för verða nemendur úr 5. og 6. bekk Varmahlíðarskóla. Á morgun munu þau síðan skoða sig um í héraðinu áður en þau halda aftur suður á bóginn.
Myndir frá heimsókninni má finna hér