Góður árangur í söfnun til bjargar börnum í neyð
Sjálfboðaliðar Hvammstangadeildar Rauða kross Íslands söfnuðu hvorki meira né minna en 87.717 kr. í átakinu Göngum til góðs sem fór fram á landsvísu sl. laugardag.
Á samskiptavef Hvammstangadeildarinnar á Facebook kemur fram að mikil ánægja sé með þennan árangur.
„Þetta er ótrúlega há upphæð miðað við ekki stærra svæði og það að mjög margir voru að heiman á laugardaginn. Til viðbótar kemur sú upphæð sem safnaðist í gengum söfnunarsímann. Vel gert íbúar Húnaþings vestra!“ segir á síðunni.
Nú í morgun var búið að telja 20 milljónir upp úr söfnunarbaukunum á landsvísu.