Góður sigur Tindastóls í Hafnarfirði í kvöld

Lið Tindastóls er heldur betur að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun í boltanum í vetur. Í kvöld heimsóttu strákarnir Hauka í Hafnarfjörðinn og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu með 80 stigum gegn 74. Leikurinn var lengstum jafn og spennandi en Stólarnir oftast skrefinu á undan heimamönnum. Maurice Miller var gríðar sterkur á lokamínútum leiksins en kappinn gerði 12 stig á síðustu tveimur mínútunum.

Staðan í hálfleik var 36-41 fyrir Tindastól en Haukar byrjuðu vel í síðari hálfleik og komust strax fjórum stigum yfir en Stólarnir náðu yfirhöndinni að nýju og leiddu að loknum þriðja leikhluta, 54-57. Fjórði leikhluti var síðan æsispennandi, munurinn á liðunum varð varla meiri en 3 stig og liðin skiptust á um að ná forystu. En það voru Stólarnir með Miller í broddi fylkingar sem reyndust sterkari í blálokin og kipptu stigunum með sér norður yfir heiðar.

Stig Tindastóls: Maurice Miller 26/11 fráköst, Trey Hampton 25/8 fráköst, Rikki 9, Þröstur Leó 8, Helgi Rafn 4, Helgi Margeirs 4, Svabbi 3 og Hreinsi 1.

Nánar má lesa um leikinn á heimasíðu Tindastóls >

Fleiri fréttir