Golfmót brottfluttra Skagfirðinga

Skagfirðingamótið, árlegt golfmót burtfluttra Skagfirðinga á höfuðborgarsvæðinu, fór fram í Borgarnesi á dögunum í ágætis veðri. Á níunda tug kylfinga mættu til leiks, þar af dágóður slatti að norðan. Sigurvegari mótsins, sem er punktakeppni, var Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir með 38 punkta. Með jafnmarga punkta var Guðjón Baldur Gunnarsson, en Imba hafði þetta með betri árangri á seinni hring. Guðjón var hins vegar með lægsta skor dagsins, 72 högg, eða einu yfir pari vallarins.

 

Fór mótið vel fram í alla staði og leikgleðin var í fyrirrúmi. Keppnisskap var þó í mönnum og vitað er um einn dagfarsprúðan kylfing sem missti stjórn á skapi sínu í djúpri sandglompu - grýtti boltanum eftir að hafa gert nokkrar tilraunir við að ná honum upp með kylfunni.

Fjölmörg pör taka alltaf þátt í Skagfirðingamóti og svo var einnig nú, að því ógleymdu að heilu fjölskyldurnar mæta á þetta "mini-ættargolfmót". Sérstök verðlaun voru veitt fyrir punktahæsta parið og þar urðu Ragnheiður Matthíasdóttir og Halldór Halldórsson hlutskörpust með 66 punkta. Á hæla þeirra komu Ingileif Oddsdóttir og Sævar Steingrímsson með 65 punkta.

Verðlaun á mótinu voru að vanda glæsileg, enda tók verðlaunaafhending í mótslok á aðra klukkustund. Þannig voru verðlaun veitt fyrir 10 efstu sætin í punktakeppni, bæði í karla- og kvennaflokki. Margskonar aukaverðlaun voru í boði þannig að fáir kylfingar fóru tómhentir heim.

Lengsta upphafshögg karla á 18. braut átti Guðjón Ragnarsson Marteinssonar og Ragnheiður Matthíasdóttir sló lengst allra kvenna á sömu braut. Nándarverðlaun voru veitt á öllum par3 brautunum, bæði meðal karla og kvenna, og þau hlutu Birgir Guðjónsson, Jóney Kristjánsdóttir, Guðjón Baldur, Andrea Björnsdóttir, Þorsteinn Gunnlaugsson, María Þorsteinsdóttir, Stefán Jóhann Hreinsson, Kristín Inga Þrastardóttir, Reynir Barðdal og Birgitta Bjargmundsdóttir. Næst holu á 4. braut í öðru höggi voru Sigríður Elín Þórðardóttir og Eyþór K. Einarsson. Og verðlaunin eru ekki alveg upptalin, sérstök hvatningarverðlaun fékk Vigfús Vigfússon, sem er á leiðinni í ókeypis golftíma hjá Erni Sölva!

Fjórir piltar villtust af leið...
Keppendur voru sem fyrr segir vel á níunda tuginn. Um tíma leit út fyrir að fjórir ungir sveinar hefðu bæst í hópinn á síðustu stundu, og alltaf gaman að sjá ný andlit. Hins vegar merkti enginn, sem til piltanna sá á vellinum, neinn skagfirskan ættarsvip og er þeir voru langt komnir með að klára hringinn uppgötvaðist að þeir voru á "vitlausum" velli, þeir töldu sig vera komna á golfvöllinn Glanna við Bifröst þar sem golfmót fór fram sama dag!

Talandi um ný andlit á mótinu þá voru nokkur meðal ,,alvöru" keppenda að þessu sinni. Meðal þeirra var Garðar Jóhannsson, leikmaður Stjörnunnar og markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar það sem af er. Garðar er ,,tengdasonur Skagafjarðar", náði sér í elstu dóttur Ragga Marteins og Sigríðar Önnu Guðjónsdóttur, hana Margréti, og er vel liðtækur kylfingur eins og sjá mátti á Hamarsvelli. Var meðal efstu manna og sló tengdaforeldrum sínum við að þessu sinni!

Fjölmörg fyrirtæki sunnan og norðan heiða lögðu Skagfirðingamóti til vinninga og kann mótsnefnd þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn. Stærstu vinningana gáfu Flugfélag Íslands, BM Vallá, Rio Tinto Alcan og Hótel Hamar. Aðrir styrktaraðilar voru Vífilfell, Nói-Síríus, Nike-umboðið, Golfbúðin Hafnarfirði, Byko, Fjarðarbakarí, Icelandair, Veisluturninn, Sjöfn Sigfúsdóttir, Securitas, Nings, TGI Fridays, Brimborg, Morgunblaðið, Kaupfélag Skagfirðinga, Steinullarverksmiðjan, Sauðárkróksbakarí, Hótel Varmahlíð, Bakkus, Bako-Ísberg, Hyrnan, Nafir fasteignafélag, Smith & Norland, Fiskkaup, Flugger litir, Íslenska auglýsingastofan, Íslenska umboðssalan, Málarasmiðjan, Passion-bakarí, Reynir bakari, Örn Sölvi Halldórsson og sveitarfélagið Skagafjörður.

/N.N.

Fleiri fréttir