Golfmót Kormáks á Akranesi
Golfmót Kormáks (not open) verður haldið á Garðavelli Akranesi sunnudaginn 1. september nk. kl. 13:00. Það eru nokkrir áhugasamir fyrrverandi Hvammstangabúar sem standa að golfmótinu og er tilgangurinn að vekja áhuga á golfíþróttinni með von um að það takist að koma upp golfvelli í Kirkjuhvammi.
Á vef Norðanáttar er sagt frá því að mótið er ætlað fyrir Kormáksfélaga fyrr og nú og kylfinga sem búsettir hafa verið á Hvammstanga eða eiga tengingu við Hvammstanga (foreldra, ömmur, afa eða maka).
Til að vinna til verðlauna með forgjöf þurfa keppendur að hafa löglega forgjöf. Allir keppendur geta unnið til verðlauna án forgjafar og til nándar- og lengdarverðlauna. Dregið verður úr skorkortum í mótslok.
Þáttökugjald er 4.000 kr. - ekki er hægt að greiða með korti
Flottir vinningar.
Skráning hjá Bjarna Guðmundssyni (Badda) í síma 896 0531