Golfnámskeið með Mark Irving

Mark Irving golfkennari mun bjóða upp á golfnámskeið á Sauðárkróki í næstu viku. Um er að ræða fjölbreytta golfkennslu þar sem kenndar eru fimm 45 mínútna kennslustundir. Farið verður yfir löngu höggin, löng járn, brautarkylfur og upphafshögg.

Einnig verður farið yfir stutta spilið, vipp, hvernig á að slá úr sandglompu, pútt og högg úr erfiðum aðstæðum. Námskeiðið hefst næsta mánudag kl 19:00 og tímasetningar eftir það eru ákveðnar í samráði við hvern hóp. Í tilkynningu frá golfklúbbi Sauðárkróks er áhugasömum bent á að hafa búa til litla hópa með 4-6 golfurum og skella sér á námskeið. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu golfklúbbsins, gss.is.

Fleiri fréttir