Grátlegt tap hjá stelpunum
Það var stíf suðvestan átt þegar Tindastólsstúlkur tóku á móti Fylki, langefsta liðinu í riðlinum. Fylkir hefur ekki tapað leik í sumar, gert eitt jafntefli og fengið einungis á sig 6 mörk.
Tindastóll lenti á móti vindi í fyrri hálfleik en létu það ekki á sig fá og skoruðu fyrsta mark leiksins strax á annari mínútu leiksins, boltinn barst til Leslie 10 metrum fyrir utan teig og hún átti frábært skot í bláhornið, óverjandi fyrir markmann Fylkis. Næstu 30 mínúturnar voru Fylkiskonur meira með boltann en náðu ekkert að ógna marki Tindastóls, og þeir fáu boltar sem láku í gegn, hirti Bryndís Rut af öryggi. Á 33. mínútu gerðu Tindastólsstúlkur slæm mistök, eftir að hafa unnið boltann í teignum, og sendu boltann beint í fæturnar á Fylkiskonunni Rakel Jónsdóttur sem þakkaði pent fyrir sig og þrumaði boltanum í netið hjá Tindastól, óverjandi fyrir Bryndísi Rut og staðan orðin1-1. Stólarnir létu þetta ekki slá sig útaf laginu og tóku miðju og eftir laglegt spil, átti afmælisbarn dagsins Bryndís Rún stungusendingu á Leslie sem skoraði sitt annað mark og kom Stólunum í 2-1. Það sem eftir lifði hálfleiksins reyndi Fylkir að sækja en Stólarnir vörðust sem einn maður. Baráttan var svo sannarlega til staðar og var Tindastóll sanngjarnt yfir í hálfleik 2-1.
Í síðari hálfleik voru Fylkiskonur mun meira með boltann en náðu ekki að opna vörn Tindastóls, Stólarnir reyndu að beita skyndisóknum sem gengu ekki alveg nógu vel. Á 55. mínútu fékk Tindastóll aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Fylkis og átti Svava góða fyrirgjöf sem endaði í stönginni og barst boltinn útí teig og á einhvern óskiljanlegan hátt náðu sóknarmenn Tindastóls ekki að nýta sér þetta og skutu framhjá í upplögðu færi og hefði það orðið til þess að brjóta Fylkiskonur endanlega niður því þær voru orðnar frekar pirraðað á því hversu illa gekk að opna vörn Tindastóls. Á 65. mínútu dæmi slakur dómari leiksins víti á Tindastól eftir hornspyrnu, og skoraði Ruth Þórðardóttir örugglega úr henni. Eftir þetta þyngdust sóknir Fylkismanna og skoruðu þær sigurmarkið á 80. mínútu eftir laglega sókn og var Rakel Jónsdóttir aftur á ferðinni með sitt annað mark. Tindastólsstúlkur geta gengið stoltar frá þessum leik, börðust allan tímann og var þessi leikur hin besta skemmtun, og vonandi verður sama uppá teningnum á sunnudaginn þegar Tindastóll tekur á móti BÍ/Bolungarvík á Sauðárkróksvelli kl. 16:00. /AVH