Grein um rannsókn á vegum Hólaskóla birt í virtu vísindariti

Grein um þroska og þróun vöðva hjá fiskum í tengslum við dvergvöxt var birt nýlega í breska vísindaritinu Proceedings of the Royal Society B en greinin er afrakstur samstarfsverkefnis Háskólans á Hólum og vísindamanna við St. Andrews háskólann í Skotlandi og er þetta þriðja greinin sem úr því samstarfsverkefni kemur. 

Greinin nefnist Universal scaling rules predict evolutionary patterns of myogenesis in species with indeterminate growth sem getur verið íslenskað í Alþjóðleg regla um skölun segir fyrir um þróun vöðvaþroska hjá tegundum með óafmarkaðan vöxt. Í rannsókninni voru dvergbleikja á Íslandi borin saman við dvergvaxin hornsíli í Alaska og niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að dvergbleikjan myndar mun færri vöðvafrumur í samanburði við bleikju sem vex í „eðlilega“ stærð. Svipuð þróun átti sér stað hjá hornsílunum.

„Þessi þróun hefur gerst mjög hratt bæði á Íslandi og í Alaska, en hér á landi eru dæmi um dvergbleikjustofna í Eldhrauni í Landbroti. Er líklegt að þessi þróun tengist því að vegna sambands yfirborðs og rúmmáls vöðvafruma þá sé til staðar besta stærð frumna, þar sem að orka sem notuð er til að viðhalda jónajafnvægi er lágmörkuð. Þá orku má þá nota til annarra hluta. Áhugavert var þó að þessi fækkun var ekki alltaf eins og þeir stofnar dvergbleikju sem lifðu á sama svæði og önnur bleikja sýndu minni fækkun. Getur það verið vegna genaflæðis milli stofna,“ segir á heimasíðu Hólaskóla.

Höfundar greinarinnar eru Ian A. Johnston, Bjarni K. Kristjánsson, Charles G. P. Paxton, Vera L. A. Vieira, Daniel J. Macqueen og Michael A. Bell. Áhugasamir sem vilja eignast eintak af greininni er bent á að hafa samband við Bjarna á póstfangið: bjakk@mail.holar.is

Fleiri fréttir