Grín og glens og skagfirsk sveifla á Skemmti- og matarkvöldi
Skagfirðingafélagið í Reykjavík heldur skemmti- og matarkvöld, í Kiwanishúsinu Engjateigi, laugardagskvöldið 8. október nk. og er dagskrá kvöldsins farin að fá á sig skýrari mynd.
Jón Dan er matreiðslumeistarinn og kemur hann með allt hráefni með sér að úr Skagafirðinum og bíður upp á Skagfirskt veisluhlaðborð. Brot af því lostæti sem er á boðstólnum er grafin gæsabringa, reykt lundasalat með byggi og púðursykurbökuð bleikja í Gæðing í forrétt. Jurtakryddað lambalæri með portvínssósu, Hrossasteik með lakkríssósu og Villibráðarpottréttur í aðalrétt. Í ábætir verður m.a. Rabbabara- og berjapæ með vanillu og rjóma.
Húsið opnar kl. 19 og þá ætlar Árni frá Útvík að kynna Gæðing, ný bjórtegund á markaðnum og er skagfirsk framleiðsla, og leyfa gestum að smakka. Páll Friðriksson verður ræðumaður kvöldsins og ætlar jafnframt að vera með grín og glens. Ásdís Guðmundssóttir ætlar að taka lagið fyrir veislugesti og að borðhaldi loknu verður stórdansleikur með hinum eina sanna Geirmundi fram á rauða nótt. Veislustjóri verður Vilhjálmur Egilsson.
Miðaverð með öllu innifalið er 4900 og hægt að leggja inn á reikn.nr.: 0140-26-1752, Kt: 5802695759 til að tryggja sér miða. Einnig er hægt að hafa samband við Lúllu (s. 8981766), Huldu (s. 8660114) eða Röddu (s.6923924).